Almenn verkefni 2019
Almenn verkefni 2019
Heiti verkefnis : | Kortlagning á mögulegum skriðflötum í berghlaupaseti í Almenningum á Tröllaskaga með TDR aðferð | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Verkefnið sem sótt er um hér byggir á samstarfi Land- og ferðamáladeildar Háskóla Íslands, Umhverfis- og byggingaverkfræðideildar | ||
Tilgangur og markmið: | ||
Óstöðugleiki og hreyfing í skriðum og lausum jarðvegi (jarðvegsmössum) ógna byggð og mannvirkjum víða um land. Samfara hlýnun veðurfars hér á landi geta miklar breytingar orðið á úrkomumagni, úrkomudreifingu og ekki síst hitastigi jarðvegsmassa líkt og nýleg dæmi sanna (Þorsteinn Sæmundsson et al. 2018). Meginmarkmið verkefnisins er að innleiða hér á landi þekkta erlenda borholu mælitækni TDR (Time Domain Reflectometry) sem nota má til að kortleggja mögulega skriðfleti í jarðvegsmössum og öðlast meiri skilning á eðli og orsökum þeirra hreyfinga. Til að sannreyna og öðlast færni í að beita þessari mælitækni var valið virkt skriðusvæði þar sem vitað er um að regluleg færsla verður á jarðvegsmössum og eins var leitast við að tryggja auðvelt aðgengi fyrir nauðsynlegan borbúnað. Í því sambandi var horft til þekkts sigsvæðis í Almenningum á utanverðum Tröllaskaga þar sem árlega verður verulegt jarðsig á Siglufjarðarvegi og umhverfi hans. Árið 2018 fékkst styrkur frá vegagerðinni og Ofanflóðasjóði til að bora eina holu á Skógarsvæðinu í Tjarnardölum og mælikapli komið fyrir í holunni. Hitastigsmælingar voru framkvæmdar á meðan á borun stóð og voru þær allar vel yfir frostmarki. Borholan varð 43 m djúp og á setsýnum að dæma þá náði hún niður fyrir skriðuefnið og líklega niður í berggrunn. |